flugfréttir

Framleiðslan hjá Airbus mun dragast saman um 40 prósent

- Spá því að það geti tekið allt að 5 ár fyrir eftirspurnina að koma til baka

30. júní 2020

|

Frétt skrifuð kl. 12:41

Frá verksmiðjum Airbus í Toulouse

Airbus hefur tilkynnt um 40 prósenta samdrátt á framleiðslu og afhendingum á nýjum farþegaþotum á næstu tveimur árum og mögulega stefni í uppsagnir á tugþúsundum starfsmanna.

Þetta kemur fram í viðtali sem þýska dagblaðið Die Welt tók við Guillaume Faury, framkvæmdarstjóra Airbus, sem tók fram að flugvélaframleiðandinn evrópski gæti ekki horft framhjá þeim breytingum sem hafa átt sér stað í flugiðnaðinum í dag.

Airbus hafði áður gert ráð fyrir að þurfa að draga saman seglin í framleiðslunni og draga úr smíði nýrra farþegaþotna um 30% en nú er séð fram á að samdrátturinn muni aukast í 40 prósent strax í byrjun næsta árs.

Líkt og Boeing þá hefur Airbus fengið margar afbókanir inn á borð til sín en einnig hafa flugfélög frestað pöntunum vegna COVID-19 heimsfaraldursins.

Airbus gerir ráð fyrir að eftirspurn eftir meðalstórum farþegaþotum eigi eftir að ná sér tiltölulega fyrr á strik á ný á meðan eftirspurnin eftir breiðþotum þart lengri tíma til að taka við sér.

Airbus telur að eftirspurn eftir nýjum flugvélum eigi eftir að vera í lægð næstu fimm árin þar sem offramboð var á nýjum flugvélum áður en heimsfaraldurinn skall á.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga