flugfréttir
Fékk óvart endurgreiðslu upp á 2.7 milljarða frá Qatar Aiways
- Farþegi fékk rétta upphæð endurgreidda en í röngum gjaldeyri
Qatar Airways hafði óvart endurgreitt farmiðann í röngum gjaldeyri
Farþegi einn, sem fékk flug endurgreitt með Qatar Airways, lenti í því að fá óvart endurgreidda 2.7 milljarða króna sem er ívið meiri upphæð en þær 272.000 krónur sem farþeginn átti að fá í endugreiðslu.
Mistökin virðast hafa legið í því að farþeginn, Jessican Tam, fékk réttu upphæð greidda en í röngum gjaldeyri. Í stað þess að fá 28.179.000 indónesískar rúpíur greiddar var sú upphæð endurgreidd í Ástralíudollar.
Jessican deildi skjáskoti af endurgreiðslunni á bankareikningnum sínum en hún var milljarðamæringur aðeins í tæpan sólarhring þar sem mistökin voru leiðrétt daginn eftir.
Jessican hafði bókað flug á Business Class farrými frá Jakarta til London en Qatar Airways aflýsti fluginu vegna COVID-19 heimsfaraldursins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.