flugfréttir
Avolon hættir við 27 Boeing 737 MAX þotur til viðbótar
Boeing 737 MAX 7 tilraunarþota Boeing
Írska flugvélaleigufyrirtækið Avolon hefur hætt við pöntun í 27 Boeing 737 MAX þotur til viðbótar en fyrirtækið hafði þegar hætt við pöntun í 75 MAX-þotur í apríl vegna COVID-19 faraldursins.
Vélarnar áttu að afhendast til Avolon á þessu ári og áttu afhendingar að standa yfir til
ársins 2022 en fyrirtækið pantaði meðal annars 75 Boeing 737 MAX þotur
á flugsýningunni Paris Air Show árið 2017 og átti Avolon þá von á 140 þotum
af gerðinni 737 MAX frá Boeing.
Frá byrjun ársins hefur Avolon hætt við pantanir í alls 140 flugvélar, flestar af gerðinni
Boeing 737 MAX, en fyrirtækið hefur einnig hætt við nokkrar þotur frá Airbus af gerðinni
Airbus A330neo og Airbus A320neo.
Vegna COVID-19 hefur Boeing fengið margar afpantanir í Boeing 737 MAX en meðal
annars hefur Norwegian hætt við 92 Boeing 737 MAX þotur og þá hefur flugvélaleigan
BOC Aviation hætt við þrjátíu Boeing 737 MAX þotur.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.