flugfréttir

United gæti þurft að segja upp 36.000 starfsmönnum í haust

- Tapa yfir 5 milljörðum króna á dag vegna COVID-19 faraldursins

8. júlí 2020

|

Frétt skrifuð kl. 15:38

Kyrrsettar farþegaþotur United Airlines á O´Hare-flugvellinum í Chicago

Bandaríska flugfélagið United Airlines tilkynnti í gær að félagið þyrfti mögulega að grípa til risahópuppsagna þar sem kórónaveirufaraldurinn er farinn að hafa verulega slæm áhrif á rekstur félagsins.

United Airlines segir að mögulega þurfi að segja upp alls 36.000 starfsmönnum sem samsvarar 45% af öllum mannafla félagsins vegna verulegs samdráttar í eftirspurn eftir flugsætum.

Félagið segir þetta eina „verstu krísu“ sem dunið hefur á flugiðnaðinum og vegna takmarkanna á ferðalögum fólks víðsvegar um heiminn og í Bandaríkjunum þá segir félagið að það neyðist til þess að grípa til aðgerða með því að segja upp starfsfólki.

United Airlines varar við því að 36.000 starfsmönnum verðir sagt upp þann 1. október í haust en um væri að ræða 15.000 flugfreyjur og flugþjóna, 11.000 starfsmenn á flugvöllum, 5.500 flugvirkjar og starfsfólk í viðhaldsdeild félagsins auk 2.250 flugmanna.

Framkvæmdarstjóri United Airlines segir að félagið geti ekki stólað eingöngu á björgunarpakka bandarísku ríkisstjórnarinnar í þessum efnum og er félagið nú þegar að tapa um 5.5 milljörðum króna á dag sem fuðra upp á meðan litlar tekjur koma inn á móti.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga