flugfréttir

Syðri flugbrautinni á Heathrow lokað fram í október

- Íbúar óttast „hávaðasama martröð“ fram á haust

15. júlí 2020

|

Frétt skrifuð kl. 11:04

Boeing 747-400 júmbó-þota British Airways yfir Myrtle Avenue götunni nálægt Heathrow-flugvelli

Íbúar í nokkrum hverfum Lundúna eru ekki ánægðir þessa daganna þar sem þeir þurfa að þola meiri flugumferð þar sem að aðeins önnur flugbrautin á Heathrow-flugvellinum verður í stanslausri notkun fram á haust.

Ástæðan er vegna viðhaldsvinnu á syðri flugbrautinni (09R/27L) og hefur sú flugbraut verið tekin úr notkun en áætluð verklok eru í október sem þýðir að norðurbrautin (09L/27R) verður eingöngu notuð á meðan.

Með því verður ekki hægt að dreifa flugumferðinni á milli brautanna tveggja en Heathrow-flugvöllur hefur vanalega skipt reglulega um flugbraut og notað aðra brautina fyrir lendingar á meðan hin er notuð fyrir flugtök og skipt síðan um þegar líður á daginn til þess að dreifa hávaðanum með tilliti til íbúa þeirra hverfa sem liggja í aðflugslínu.

Ekki hefur verið efnt til formlegra mótmæla en íbúar í Fulham-hverfinu og í Parsons Green hafa lýst yfir reiði sinni og segja að þetta muni verða „hávaðasöm kvöl“ næstu þrjá mánuðina fyrir þá íbúa sem búa undir aðflugslínunni.

Syðri flugbrautinni var lokað sl. mánudag en vegna þess hversu umfangsmiklar framkvæmdirnar eru sem fyrirhugaðar eru á brautinni verði ekki hægt að vinna verkið á næturnar og hafa brautina opna á daginn eins og gert hefur verið stundum þegar um minniháttar viðhaldsvinnu er að ræða.

Vegna minni flugumferðar um Heathrow-flugvöll vegna COVID-19 heimsfaraldursins þá tók flugvöllurinn upp blandaða notkun á brautunum þar sem flugtök og lendingar eru leyfðar á sömu flugbraut en íbúar í nágrenninu óttast að þessi blandaða notkun verði það sem koma skal eftir heimsfaraldurinn ef Heathrow ætlar sér að nota þessa aðferð til þess að fjölga flugvélahreyfingum úr 480.000 flugferðum á ári upp í 565.000 flugferðir.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga