flugfréttir
Flugmaður ruglaðist á þjónustuvegi og akbraut
Atvikið átti sér stað í Suður-Karólínu í júlí árið 2018
Lítil einkaflugvél varð fyrir minniháttar skemmdum er flugmaður vélarinnar ruglaðist á akbraut og þjónustuvegi sem er ætlaður fyrir flugvallarökutæki.
Samgönguöryggisnefnd Bandaríkjanna (NTSB) hefur gefið út skýrslu vegna atviksins sem átti sér stað
25. júlí árið 2018 en um er að ræða Piper PA-46 Malibu flugvél sem rakst með vænginn utan
í stöðvunarskyldumerki eftir flugvélin fór inn á veg sem ætlaður er ökrutækjum.
Atvikið átti sér stað á Columbia Metropolitan flugvellinum í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum og spurði
flugmaðurinn flugumferðarstjórann hvort að hann gæti beygt inn á akbraut „taxiway Delta 6“ og fékk
hann heimild til þess.
Eftir að flugmaðurinn tók beygjuna rakst vængur vélarinnar í „lágt“ stöðvunarskyldumerki þar sem flugmaðurinn tók beygju inn á þjónustuveg sem liggur samsíða taxiway Delta 6 akbrautinni.
Stöðvunarskyldi merkið sem flugvélin rakst utan í með vinstri vænginn
Flugvélin varð fyrir minniháttar skemmdum undir vinstri vængnum en flugmanninn sakaði ekki.
Flugmaðurinn hafði einkaflugmannsréttindi með áritun fyrir einshreyfilsflugvélar auk blindflugsréttinda og
var hann með 985 heildarflugtíma og þar af 200 tíma á Piper Malibu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.