flugfréttir

Vonast til að hafa 40 MAX-þotur sumarið 2021

27. júlí 2020

|

Frétt skrifuð kl. 06:46

Tölvugerð mynd af Boeing 737 MAX þotu í litum Ryanair

Írska lágfargjaldafélagið Ryanair bindur vonir um að vera komið með 40 Boeing 737 MAX þotur í flotann sinn fyrir sumarið 2021.

Ryanair gerir ráð fyrir að mögulega fái það fyrstu Boeing 737 MAX þotuna afhenta fyrir lok þessa árs en þoturnar sem félagið pantaði koma með sæti fyrir 200 farþega sem er sérstök útgáfa sem Boeing býður upp á fyrir lágfargjaldaflugfélög.

Félagið segir í nýlegri yfirlýsingu að Ryanair sé sannfært um að Boeing 737 MAX þotan eigi eftir að breyta miklu fyrir félagið sem átti upphaflega að fá sína fyrstu 737 MAX þotu í maí í fyrra.

Rekstur Ryanair hefur verið mjög krefjandi en á fyrsta ársfjórðungi þessa árs tapaði félagið 29 milljörðum króna samanborið við 38 milljarða króna hagnað á sama tíma í fyrra.

Félagið segir að það sé mjög erfitt að spá fyrir um horfurnar á næstunni þar sem óljóst sé hversu víðtæk áhrif seinni bylgja af kórónaveirunni í Evrópu eigi eftir að hafa á flugiðnaðinn og séu þær aðstæður það versta sem félagið óttast núna.

Í júlí hefur Ryanair flogið 40% af upphaflegri flugáætlun sinni fyrir þann mánuð og spáir félagið því að tíðni og fjöldi flugferða verði komin upp í 60 prósent í ágúst og 70% í september.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga