flugfréttir

Top Gun: Maverick frestað fram til sumarsins 2021

- Hafði þegar verið frestað fram til desember á þessu ári

27. júlí 2020

|

Frétt skrifuð kl. 07:58

2. júlí 2021 er ný frumsýningardagsetning fyrir Top Gun: Maverick

Enn lengri bið verður eftir því að nýja Top Gun bíómyndin komi í kvikmyndahús en kvikmyndaframleiðandinn Paramount Pictures tilkynnti sl. fimmtudag að frumsýningu myndarinnar hafi verið frestað aftur fram á næsta sumar.

Til stóð að Top Gun: Maverick yrði frumsýnd þann 24. júní síðastliðinn en myndinni var í apríl frestað fram til jóla í ár eða til 23. desember vegna lokanna í kvikmyndahúsum vegna COVID-19 heimsfaraldursins.

Paramount Pictures tilkynnti sl. fimmtudag að frumsýningu hafi nú verið frestað fram á næsta sumar og kemur hún ekki í kvikmyndahúsin fyrr en þann 2. júlí 2021 sem er ný frumsýningardagsetning.

Eins og sést er búið að breyta dagsetningunni á veggspjaldinu fyrir myndina

Kvikmyndahúsin binda miklar vonir við metaðsókn þegar kemur að frumsýningu á stórmyndum á borð við Top Gun: Maverick en miðað við ástandið í dag og þá sérstaklega vestanhafs þá óttast kvikmyndaframleiðendur á borð við Paramount Pictures og Warner Bros að mjög fáir myndu leggja leið sína í kvikmyndahúsin sem þýðir að miðasala yrði mjög dræm samanborið við ef aðstæður væru venjulegar.

Mikil bið hefur verið meðal flugáhugamanna eftir framhaldinu af gömlu Top Gun myndinni sem frumsýnd var árið 1986 og mun Tom Cruise snúa aftur í hlutverki Maverick.

Meðal annarra leikara sem fara með hlutverk í myndinni eru Jennifer Connelly, Ed Harris, Val Kilmer sem „Iceman“, Jon Hamm, Glen Powell, auk fleiri leikara.

Tom Cruise og Jennifer Connelly við tökur á Top Gun: Maverick







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga