flugfréttir

Lenti 1 mínútu eftir að reglur um sóttkví tóku gildi

- Lenti klukkan 00:00 en hefði þurft að lenda klukkan 23:59

10. ágúst 2020

|

Frétt skrifuð kl. 12:42

Boeing 737-800 þota frá SAS

158 farþegar sem voru um borð í farþegaþotu hjá SAS neyddust til þess að fara í 10 daga sóttkví við komuna til Noregs um helgina sem þeir hefðu annars sloppið við ef flugvélin hafði lent aðeins einni mínútu fyrr.

Um var að ræða flug SK4700 frá Nice í Frakklandi til Oslóar en eftir brottför tilkynntu norsk stjórnvöld um að Frakkland yrðu flokkað sem rautt hættusvæði frá og með miðnætti aðfaranótt 6. ágúst sl. þar sem COVID-19 tilvikum hefur fjölgað þar í landi.

Það þýddi að allir farþegar sem koma til Noregs frá Frakklandi þurftu að fara í 10 daga sóttkví sem tók í gildi á miðnætti þetta kvöldið en flugvélin frá Nice átti að lenda kl. 00:10 en flugvélin var þó um 10 mínútum á undan áætlun.

Flugmennirnir flugu í kapp við tímann frá Nice til Oslóar og var séð fram á að mögulega væri hægt að ná að lenda fyrir miðnætti á Gardermoen-flugvellinum og klöppuðu farþegarnir fyrir flugmönnunum þegar vélin snerti brautina þegar klukkan sló miðnætti.

Því miður þá gekk það ekki eftir og lenti flug SK4700 í Osló níu mínútum á undan áætlun eða kl. 00:01 samkvæmt vefsíðunni Flightradar24.com þrátt fyrir að flugumferðarstjórar merktu lendinguna klukkan 00:00.

Fram kemur að flugvélin hefði þurft að lenda kl. 23:59 til þess að farþegar myndu sleppa við sóttkví og fögnuðu farþegarnir því aðeins of snemma með lófaklappinu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga