flugfréttir
54 flugmenn féllu á áfengisprófi í fyrra á Indlandi
Flugmenn hjá indverska flugfélaginu Air India
Aldrei hafa fleiri atvinnuflugmenn á Indlandi fallið á áfengisprófi líkt og í fyrra en fram kemur í tölum frá indverskum yfirvöldum að 54 flugmenn féllu á prófi er þeir voru látnir blása rétt fyrir brottför en í einhverjum tilvikum voru próf tekin að flugi loknu.
Sami fjöldi féll á áfengisprófi árið 2018 og voru þá einnig 54 flugmenn sem höfðu
haft bakkus um hönd áður en þeir áttu að stíga inn í flugstjórnarklefann.
„Þetta eru sláandi tölur. Flugvélar eru ein flóknustu farartæki sem hægt er að stjórna
og í þessu umhverfi þar sem öryggið er ætíð númer eitt þá er það mjög
ógnvænlegt fyrir farþega að komast að því að flugmaðurinn hafi verið undir
áhrifum áfengi“, segir Rajesh Modi hjá fyrirtækinu RTI.
Af þeim 54 flugmönnum sem féllu á áfengisprófi árið 2019 þá voru 46 af þeim
sem gerðust brotlegir í fyrsta sinn en í fjórum tilvikum var um að ræða flugmenn
sem voru teknir í annað sinn undir áhrifum og í tveimur tilfellum var um að ræða
erlenda flugmenn.
Tölurnar hafa aðeins farið hækkandi undanfarin ár en árið 2015 féllu 43 flugmenn á áfengisprófi
á Indlandi, 46 féllu árið 2016 og einnig árið 2017 en eftir það hefur tilfellum fjölgað
um 8 tilfelli bæði árið 2018 og 2019.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.