flugfréttir

Selja ellefu Dash 8-400 flugvélar úr flota Flybe

11. ágúst 2020

|

Frétt skrifuð kl. 17:52

Nokkrar af De Havilland Dash 8 Q400 flugvélum úr flota Flybe hafa verið í geymslu á flugvellinum í Maastricht í Hollandi

Ellefu De Havilland Dash 8-400 flugvélar sem voru í flota breska lágfargjaldafélagsins Flybe verða seldar og munu fara til nýrra eigenda.

Breska flugvélaleigusalan og flugvélaleigan Skyworld Aviation hefur tilkynnt að um sé að ræða ellefu flugvélar af gerðinni Dash 8 Q400 og er söluferlið unnið í samstarfi við þýska fyrirtækið HEH Hamburger EmissionHaus sem sérhæfir sig í viðskiptum með flugvélar.

Í tilkynningu segir að eingöngu sé um sölu að ræða þótt að mögulega til greina komi að leigja einhverjar vélarnar út.

Flybe varð gjaldþrota aðfaranótt 5. mars í vor eftir árangurslausar tilraunir forsvarsmanna félagsins til þess að bjarga rekstrinum en félagið var stærsta svæðisflugfélag (regional airline) Evrópu og 4. stærsta flugfélag Bretlands.

De Havilland Dash 8-400 flugvélarnar ellefu voru framleiddar frá árunum 2007 til 2009 og hefur ekki enn verið gefið upp hvaða vélar verða seldar af þeim 26 flugvélum sem framleiddar voru fyrir Flybe af þessari gerð en alls hafði félagið 54 De Havilland Dash 8-400 vélar í flotanum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga