flugfréttir
Airbus með 4 pantanir í júlí og Boeing með engar
- Fjórar nýjar þotur afhentar frá Boeing og 49 frá Airbus í síðasta mánuði
Óafhentar Boeing 737 MAX þotur á Grant County flugvellinum í Moses Lake í Washington-fylki í Bandaríkjunum
Engar pantanir í nýjar flugvélar komu inn á borð til Boeing í júlímánuði sem leið en til samanburðar þá fékk Boeing pantanir í 31 þotu í júlí í fyrra.
Þá fékk Airbus pantanir í aðeins fjórar þotur í júlí en afhenti 49 flugvélar eða 45 fleiri flugvélar
heldur en Boeing, tvær af gerðinni Airbus A220 og 47 úr A320neo fjölskyldunni.
Boeing missti pantanir í 52 flugvélar í júlí sem viðskiptavinir hættu við. Boeing afhenti
aðeins fjórar flugvélar í síðasta mánuði en
í júlí árið 2019 afhenti framleiðandinn 19 farþegaþotur til samanburðar.
Flestar afbókanirnar eru sökum COVID-19 heimsfaraldursins en sætanýting í
innanlandsflug í Bandaríkjunum er enn aðeins brot af því sem eðlilegt er og þá er næstum
allt langflug til fjarlægra áfangastaða og millilandaflug ennþá lamað víðast hvar í heiminum.
Þær fjórar flugvélar sem Boeing afhenti í júlí voru allar afhentar frá verksmiðjunum í Everett
og er um að ræða tvær farþegaþotur af gerðinni Boeing 787-9 sem fór til Air France
og Turkish Airlines og tvær fraktþotur, eina af gerðinni Boeing 767 sem var afhent til FedEx
og eina af gerðinni Boeing 777F sem fór til DHL.
Af þeim 52 flugvélum sem viðskiptavinir hættu við að panta í júlí voru 43 af gerðinni Boeing 737 MAX
og er heildarfjöldi þeirra Boeing 737 MAX þotna sem viðskiptavinir hafa hætt við á þessu ári
komin í 864 flugvélar.
Í lok júlí stóð heildarfjöldi þeirra Boeing 737 MAX þotna sem pantaðar hafa verið frá upphafi
og stendur enn til að smíða í 4.496 eintökum en til samanburðar þá stóð heildarfjöldi
þeirra þotna úr Airbus A320neo fjölskyldunni sem pantaðar hafa verið í 6.065 eintökum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.