flugfréttir
Stækkun London City flugvallarins frestað
Til stóð að taka nýju flugstöðina í gagnið árið 2023
Búið er að ákveða að hlé verður gert á framkvæmdum við stækkun á London City flugvellinum vegna COVID-19 heimsfaraldursins.
Framkvæmdir voru þegar byrjaðar við viðamikla stækkun á flugstöð vallarins sem átti að verða tilbúin
árið 2023 en kostnaður við framkvæmdirnar nema tæpum 90 milljörðum króna.
Talsmaður London City flugvallarins segir að flugumferð um flugvöllinn hafi aukist
að nýju í sumar að einhverju leyti en það hafi þó gerst mun hægar en búist var við.
Fjárfestar og hluthafar í London City flugvellinum samþykktu framkvæmdirnar árið 2016
en einnig stendur til að leggja nýja akbraut samsíða flugbrautinni til að ná fram auknum afköstum og þá er gert fyrir
flugvallarstæðum fyrir átta flugvélar til viðbótar.
Lokið verður við þær framkvæmdir sem eru nú þegar komnar langt á leið en kostnaður
við þann hluta framkvæmdanna nemur 59 milljöðrum króna og er þar um að ræða
framkvæmdir á akbrautinni og nýjum stæðum fyrir átta flugvélar. Hlé verður hinsvegar
gert á framkvæmdum við stækkun flugstöðvarinnar.
Robert Sinclair, framkvæmdarstjóri London City flugvallarins, segir að stjórn vallarins
og fjárfestar séu sannfærðir um mikilvægi stækkunarinnar til lengri tíma litið.
Hlé verður gert á framkvæmdum við stækkun flugstöðvarinnar á London City flugvellinum vegna COVID-19 heimsfaraldursins
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.