flugfréttir
Ryanair dregur úr umsvifum sínum í haust um 20 prósent
- Bíða með aukið sætaframboð og óttast áhrifin af seinni bylgju COVID-19
Flugvélar Ryanair á flugvellinum í Gdansk í Póllandi
Ryanair ætlar að draga úr sætaframboði um 20 prósent í september og október þar sem flugfélagið sér fram á dræmar bókanir og minni eftirspurn eftir flugsætum vegna seinni bylgju kórónaveirufaraldursins.
Lágfargjaldafélagið írska segir að fjölgun COVID-19 tilfella skapi meiri óvissu meðal farþega er kemur að ferðalögum og tveggja vikna sóttkví í flestum löndum dragi úr löngun til þess að ferðast.
Ryanair hefur í ágúst flogið um 60% af upphaflegri flugáætlun sinni og stóð til að fjölga flugferðum og auka tíðni upp í 70 prósent í september og október en þau áform hafa núna breyst og verður sætaframboðið minnkað niður í 50 prósent.
Ryanair ætlar að draga úr tíðni flugferða í stað þess að hætta með flugleiðir milli áfangastaða og mun samdrátturinn mest bitna á tíðni ferða til Spánar, Frakklands
og Svíþjóðar.
Félagið óttast nú mest þau áhrif sem önnur bylgjan kann að hafa á rekstur félagsins
en Ryanair hafði áform um að auka umsvif sín að nýju með miklum krafti í haust.
Þá hafa fleiri flugfélög þurft að bíða með áætlanir sínar um að fjölga
flugferðum á ný vegna seinni bylgjunnar og þar á meðal flugfélög eins og Finnair og Air France.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.