flugfréttir

Sami farþegafjöldi og var ekki fyrr en árið 2024

- Icelandair telur að farþegum fari að fjölga að ráði vorið 2021

19. ágúst 2020

|

Frétt skrifuð kl. 13:52

Boeing 757 þotur Icelandair á Keflavíkurflugvelli í október í fyrra

Icelandair gerir ráð fyrir að það muni taka félagið fjögur ár að ná aftur sama farþegafjölda og flaug með félaginu árið 2019.

Þetta kemur meðal annars fram í tilkynningu frá Icelandair Group og segir þar meðal annars að gert sé ráð fyrir að farþegum fari að fjölga á ný að ráði á öðrum ársfjórðungi næsta árs eða vorið 2021 og verði farþegafjöldinn orðin sá sami og hann var fyrir tíma COVID-19 árið 2024.

Þetta er í takt við spár hjá mörgum öðrum flugfélögum og einnig samkvæmt spá Alþjóðasamtaka flugfélaganna (IATA) sem sér fram á að flugið í heiminum eigi eftir að ná sér aftur á sama strik eftir
um það bil 4 ár.

Í kynningarefni sem Icelandair Group birti í gær kemur fram farþegaspá þar sem séð er fram á að sætaframboð á mánuði yfir sumarmánuðina árið 2021 gæti náð sama fjölda sæta sem voru í boði í ársbyrjun þessa árs.

Úr kynningarefni Icelandair sem birt var í gær vegna hluthafafundar

Farþegafjöldinn verður mestur eins og venjan er á sumrin en dregst svo saman yfir vetrarmánuðina og mun fjölgunin aukast milli ára þar til árið 2024 að fjöldi farþega verður aftur sá sami og hann var í fyrra.

Þangað til næsta vor er séð fram á að flugáætlun Icelandair verði áfram takmörkuð svipað og verið hefur vegna ferðatakmarkanna víðast hvar í Evrópu og fleiri löndum en þá eru Bandaríkin ennþá nánast lokuð sem gerir félaginu erfitt fyrir þar sem yfir 70% af farþegum Icelandair hafa verið tengifarþegar sem hafa flogið á milli Norður-Ameríku og Evrópu með viðkomu í Keflavík.

Ríkisstjórnin tilkynnti í gær að ákveðið hefði verið að veita Icelandair ríkisábyrgð upp á 16,5 milljarða króna og kemur fram að það ætti að tryggja rekstur félagsins næstu 4 árin en ábyrgðin er háð þeim skilyrðum að Icelandair nái að afla nýs hlutafjár.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga