flugfréttir

Fyrsta pöntun ársins í 737 MAX berst til Boeing

- Enter Air pantar fjórar Boeing 737 MAX 8 til viðbótar

20. ágúst 2020

|

Frétt skrifuð kl. 12:56

Boeing 737 MAX þota frá Enter Air

Boeing hefur fengið fyrstu pöntun inn á borð til sín á þessu ári í Boeing 737 MAX þotuna og er það pólska flugfélagið Enter Air sem hefur lagt inn pöntun í fjórar Boeing 737 MAX 8 þotur.

Enter Air er stærsta leiguflugfélag Póllands og hefur félagið eingöngu Boeing 737 þotur í flotanum sem samanstendur af 22 þotum af gerðinni Boeing 737-800 og tveimur Boeing 737 MAX 8 þotum sem eru kyrrsettar þessa daganna eins og aðrar MAX-vélar.

„Þrátt fyrir krísuna sem blasir við í fluginu þá er mikilvægt að horfa til framtíðar“, segir Grzegorz Polaniecki, rekstarstjóri Enter Air, sem bætir við að hann sé sannfærður um að Boeing 737 MAX eigi eftir að verða besta flugvél í heimi til margra ára þegar hún fær að fljúga aftur.

Þá kemur fram að Enter Air hafi einnig náð samkomulagi við Boeing varðandi skaðabætur vegna kyrrsetningu þeirra tveggja Boeing 737 MAX véla sem félagið var komið með í flotann.

Enter Air á eftir að fá fjórar Boeing 737 MAX þotur afhentar og með pöntuninni í þessar fjórar þotur til viðbótar á Enter Air von á því að vera með tíu MAX-þotu í rekstri á næstu árum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga