flugfréttir
United flýgur 1.000 ferðir með frakt á mánuði
Helmingur af þeim 770 tonnum af frakt sem United Airlines hefur flogið með í sérstöku fraktflugi eru lækningavörur vegna COVID-19
Bandaríska flugfélagið United Airlines tilkynnti í gær að félagið hefði frá því í mars í vor flogið yfir 5.000 flugferðir eingöngu með frakt og er félagið því að fljúga um 1.000 flugferðir með frakt á mánuði.
United Airlines hefur frá því heimsfaraldurinn braust út flogið með yfir 770 tonn af flugfrakt milli heimsálfa
sem hefur verulega vegið upp á móti samdrætti í farþegaflugi.
Jan Krems, forstjóri United Cargo, segir að fáir hefðu trúað því ef þeim hefði verið sagt við upphaf ársins að United
Airlines ætti árið 2020 eftir að fljúga með mun meira af frakt heldur en farþegum.
62% af allri frakt sem United Airlines hefur flogið með eru lækningavörur
Helmingur af þeim 770 tonnum af frakt sem United Airlines hefur flogið með í sérstöku fraktflugi eru lækningavörur
vegna COVID-19 á borð við hlífðarfatnaðs, andlitsgrímur auk lyfja en þá hefur félagið einnig flutt mikið af
birgðum til bandarísks herliðs víðsvegar um heiminn.
Ekkert annað bandarískt flugfélag í farþegaflugi hefur hagnast eins mikið á fraktflugi sl. mánuði eins og United
Airlines en tekjur félagsins á öðrum ársfjórðungi vegna fraktflugs námu 55 milljörðum króna.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.