flugfréttir

Reyna að hafa uppi á flugmanni sem flaug undir brú

- Flaug undir eina lengstu hengibrú í Norður-Ameríku

20. ágúst 2020

|

Frétt skrifuð kl. 20:11

Skjáskot af myndbandi sem starfsmaður bandarísku strandgæslunnar náði af flugvélinni er hún flaug undir Mackinac-brúnna

Stjórnvöld í Bandaríkjunum reyna nú að komast að því hvaða flugmaður flaug undir Mackinac-brúnna í Bandaríkjunum fyrr í sumar en bæði bandaríska strandgæslan og lögreglan í Michigan-ríki reyna að hafa hendur í hári flugmannsins.

Flugmaðurinn flaug undir brúnna þann 28. júní í sumar og náðist flugið á myndband af einum áhafnarmeðlimi í bandarísku strandgæslunni sem var staddur á strandgæslubáti sem var töluvert langt í burtu en nú er óskað eftir skýrari myndum eða myndböndum sem einhver kann að hafa náð í nágrenninu.

Mackinac-brúin er 24. lengsta brú í heimi sem tengir saman Michigan-vatn og Huron-vatnið sem eru tvö af Vötnunum miklu sem staðsett eru við landamæri Bandaríkjanna og Kanada.

Mackinac-brúin tengir saman Michigan-vatnið og Huron-vatnið og er hlut af Interstate 75 hraðbrautinni

Lögreglan segir í yfirlýsingu að um gríðarlega kærulausa hegðun hafi verið að ræða og fífldirfsku er flugmaður flaug lágflug að brúnni og fór síða undir hana.

„Þarna var öryggi almennings ógnað og allra þeirra sem voru á brúnni. Við vonum að einhver eigi eftir að gefa sig fram með upplýsingar svo við getum komið í veg fyrir að svona gerist aftur“, segir Gary Demers, lögregluþjónn í Michigan.

Myndband:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga