flugfréttir
Kanada að hefja prófanir á Boeing 737 MAX
- Fyrsta landið til að framkvæma sína eigin prófanir á breytingum á 737 MAX
Boeing 737 MAX þota frá Air Canada
Flugmálayfirvöld í Kanada munu á næstunni framkvæma prófanir með Boeing 737 MAX þotunum til að gera tilraunir með tilliti til þeirra breytinga sem Boeing hefur gert með uppfærslu á hugbúnaði á vélunum.
Kanada er fyrsta landið utan Bandaríkjanna til að framkvæma sína eigin prófanir á þeim lagfæringum sem
gerðar hafa verið á Boeing 737 MAX til að ganga úr skugga um að flugvélarnar séu öruggar til flugs.
Prófanirnar hefjast í næstu viku og fara fram í kanadískri lofthelgi og mun það greiða leiðina fyrir
flugfélög á borð við Air Canada og WestJet sem bæði hafa fengið afhent til samans 37 eintök af MAX-vélunum.
Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa í sumar framkvæmt prófanir á Boeing 737 MAX og er þeim
prófunum nú lokið en þær stóðu yfir í tvo mánuði.
Meðal atriða sem kanadísk flugmálayfirvöld eru mjög óánægð með er virkni í kerfi sem varar við ofrisi sem kallast „stick shaker“
sem sagt er að ekki sé hægt að aftengja þrátt fyrir að ekki sé hætta á ofrisi.
Viðvörunarkerfið framkallar hristing í stýrum ef áfallshorn vélarinnar er orðið of mikið og vélin
fer að nálgast ofris og kemur fram að prófanir munu einblína á virkni þess búnaðar auk þess sem margar
tilraunir verða gerðar til þess að sannreyna þær niðurstöður sem FAA fengu úr þeim flugprófunum sem fram fóru í Bandaríkjunum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.