flugfréttir
Qantas sér ekki fram á millilandaflug fyrr en í júlí 2021
- Telur að fólk muni ferðast strax og takmarkanir verða afnumdnar
Boeing 787-9 þota frá Qantas
Ástralska flugfélagið Qantas sér ekki fram á að fljúga neitt einasta millilandaflug að minnsta kosti í eitt ár til viðbótar og telur félagið að það muni ekki hefja millilandaflug að ráði fyrr en komið verður fram í júlí næsta sumar.
Þetta sagði Alan Joyce, framkvæmdarstjóri Qantas, er hann tilkynnti um afkomu flugfélagsins
en tekjur Qantas drógust saman um 404 milljarða króna á fyrri ársfjórðungi þessa árs.
„Alþjóðlegir áfangastaðir munu sennilega ekki opna fyrr en í júlí árið 2021 og mögulega kannski
eitthvað aðeins örlítið fyrr fyrir flugs á milli Ástralíu og Tasmaníu“, sagði Joyce sem segir þessa
tíma vera þá erfiðustu í 100 ára sögu Qantas.
Joyce nefnir einnig að félagið hafi orðið fyrir skaða og verulegri röskun við það að lönd fóru
að opna landamæri sín á ný vegna COVID-19 en loka þeim svo aftur skömmu síðar.
„Við vitum hinsvegar að ferðalög er númer eitt á lista hjá fólki varðandi þá hluti sem þeim finnst
skemmtilegast að gera þannig við vitum að eftirspurnin kemur strax aftur um leið og lönd í heiminum
byrja að aflétta ferðatakmörkunum“, segir Joyce.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.