flugfréttir

Byrja með 88 flugmenn í stað 625 flugmanna

- Viðræður við fjárfesta lofa góðu - Nýtt South African gæti flogið eftir áramót

25. ágúst 2020

|

Frétt skrifuð kl. 07:44

Flugvélar South African Airways á flugvellinum í Jóhannesarborg

Stjórn suður-afríska flugfélagsins South African Airways á nú í viðræðum við fjárfesta og gæti svo farið að „nýtt“ South African flugfélag hefji sig á loft á næsta ári og það fljótlega eftir áramót ef allt gengur eftir.

Ríkisstjórn Suður-Afríku hafði tilkynnt að stjórnvöld myndu ekki setja meira fé í rekstur félagsins en þess í stað myndi hefjast leit af einkafjárfestum og kemur fram að nú þegar hafa tíu aðilar sýnt South African Airways áhuga og lofa viðræður góðu.

Rekstur South African yrði endurreistur en í töluvert smærri mynd og gæti farið svo að félagið myndi byrja að fljúga aftur á nýjum grunni rétt eftir áramót en það veltur þó allt á hver þróunin á eftir að verða varðandi COVID-19 heimsfaraldurinn.

Nýja flugfélagið myndi þó aðeins hafa um 1.000 starfsmenn en South African Airways hafði um 4.700 starfsmenn þegar mest var og þá er stefnt á að hefja starfsemina með 88 flugmenn í stað 625 flugmanna sem störfuðu hjá félaginu.

Markmiðið er að stofna nýtt flugfélag fyrir landið sem muni ná miklum árangri eftir tíma COVID-19 heimsfaraldursins en sögu South African Airways, sem hefur í mörg ár verið skuldum vafið og lengi á barmi gjaldþrots, má rekja aftur til ársins 1934.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga