flugfréttir

Kröfuhafar samþykkja björgunaráætlun fyrir Virgin

- 222 milljarða króna björgunarfé mun halda félaginu á floti til ársins 2022

25. ágúst 2020

|

Frétt skrifuð kl. 17:10

Airbus A350 breiðþota Virgin Atlantic í flugtaki á Heathrow-flugvellinum í London

Kröfuhafar hafa samþykkt björgunaráætlun fyrir breska flugfélagið Virgin Atlantic Airways sem hljómar upp á 222 milljarða króna.

Stjórn Virgin Atlantic hefur beðið í ofvæni eftr niðurstöðum frá kröfuhöfum og lánadrottnum sem lýstu því yfir í dag að björgunaráætlun félagsins hafi verið samþykkt.

Þetta þýðir að Virgin Atlantic færist stóru skrefi nær bjartari tímum og getur byrjað að vinna eftir viðsnúningsáætlun sinni sem miðar af því að tryggja framtíð félagsins eftir heimsfaraldurinn.

Um 99% af tæplega 200 kröfuhöfum samþykktu björgunaráætlun Virgin Atlantic en flugfélagið breska þurfti að fá að lágmarki samþykki frá 75 prósent af kröfuhöfum.

Virgin Atlantic hafði varað við því að ef áætlanir félagsins yrðu ekki samþykktar myndi rekstarfé félagsins verða uppurið í september.

Félagið, sem er 51% í eigu Virgin Group, sem er í eigu Sir Richard Branson, hefur tekið til róttækra aðgerða til að draga úr rekstarkostnaði og hefur 3.500 starfsmönnum verið sagt upp auk þess sem félagið hefur hætt allri starfsemi sinni á Gatwick-flugvellinum, tekið allar júmbó-þoturnar úr flotanum og frestað móttöku á nýjum þotum.

Meðal kröfuhafa eru m.a. bankar, sem hafa lánað Virgin Atlantic fé, hluthafar og flugvélaleigufyrirtæki.

Björgunaráætlun Virgin Atlantic miðar af því að félagið nái að halda sér á floti í 18 mánuði þar til að félagið fer að skila aftur inn hagnaði árið 2022.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga