flugfréttir
Ernir hættir að fljúga til Vestmannaeyja
- Ekki nægileg eftirspurn eftir flugi til Eyja eins og staðan er í dag
Jetstream-skrúfuþota flugfélagsins Ernis á flugvellinum í Vestmannaeyjum
Flugfélagið Ernir hefur tilkynnt að áætlunarflugi til Vestmannaeyja verði hætt á næstunni.
Samkvæmt vefmiðlinum Eyjafréttir kemur fram að Ernir hafi sent frá sér tilkynningu síðdegis í dag þar sem fram kemur að félagið hafi ákveðið að hætta flugi til Vestmannaeyja sökum lítillar eftirspurnar á flugsætum.
Fram kemur að stjórnendur félagsins telji ekki ráðlagt að halda inn í veturinn að óbreyttu
en staðan varðandi flug til Vestmannaeyja verði áfram til skoðunar og segir að félagið
geti brugðist fljótt við og tekið þráðinn upp að nýju ef aðstæður breytast til hins betra.
Tekið er fram að hægt sé að taka flugvél á leigu
ef svo ber undir til þess að komast milli lands og Eyja og er stofnunum, fólki og fyrirtækjum
bent á að hafa samband við Erni hafi það fyrirspurnir varðandi leiguflug.
Vonast er til þess að Erni hefji áætlunarflug til Vestmannaeyja að nýju í náinni framtíð en eins og staðan er í dag þá er eftirspurnin ekki nógu mikil til þess að réttlæta áætlunarflug til eyjanna.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.