flugfréttir
Fjórða Boeing 777X þotan flýgur sitt fyrsta flug
N779XZ, fjórða Boeing 777X tilraunarþotan frá Boeing
Fjórða Boeing 777X tilraunarþotan hefur slegist í hóp þeirra tilraunarflugvéla sem Boeing mun nota við flugprófanir á arftaka 777 þotunnar og er hún, eins og hinar, einnig af gerðinni Boeing 777-9.
Fjórða tilraunarþotan, sem ber skráninguna N779XZ, birtist á vefnum Flightradar24.com
í gær í sínu fyrsta flugi, rúmum átta mánuðum eftir að fyrsta Boeing 777X þotan flaug
jómfrúarflugið en hinar tvær flugu sín fyrstu flug þann 30. apríl og 4. ágúst á þessu ári.
Vegna kórónaveirufaraldursins hefur Boeing þurft að fresta komu Boeing 777X þotunnar
á markaðinn um eitt ár og verður fyrsta eintakið afhent árið 2022.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.