flugfréttir

Myndband: Cessna 172 hefur sig á loft á hraðbraut

- Varð uppiskroppa með eldsneyti og lenti á hraðbraut nálægt Knoxville

11. september 2020

|

Frétt skrifuð kl. 17:07

Skjáskot af myndbandi sem tekið var er Cessna 172 flugvélin fór í flugtak af hraðbrautinni Interstate I-640

Myndband af lítilli flugvél hefja sig á loft frá hraðbraut í Tennessee í Bandaríkjunum hefur vakið töluverða athygli á samfélagsmiðlum og á flugtengdum síðum á Fésbókinni nú fyrir helgi.

Fram kemur að flugmaðurinn, sem flaug flugvélinni sem er af gerðinni Cessna 172, hafi farið í loftið frá Skyranch flugvellinum skammt suður af Knoxville með tvo farþega um borð síðastliðinn miðvikudag.

Flugmaðurinn hafði skömmu síðar áttað sig á því að hann var ekki með hægt eldsneyti til þess að ná til áfangastaðar og neyddist hann til þess að lenda á Interstate I-640 hraðbrautinni í nágrenni við borgina Knoxville þegar eldsneytið var að verða á þrotum.

Engan sakaði í lendingunni sem tókst giftusamlega og náði flugmaðurinn að lenda á hraðbrautinni án þess að rekast á neina bíla eða mannvirki en fram kemur að tiltölulega lítil umferð hafi verið á hraðbrautinni á þessu augnabliki.

Að sögn lögreglunnar í Tennessee var hraðbrautinni til vesturs lokað með vegatálmum á meðan flugvélin var fyllt af eldsneyti en skömmu síðar hóf flugvélin sig aftur á loft með lögreglumenn á þremur mótorhjólum sem fylgdu honum eftir auk nokkurra lögreglubíla.

Myndband:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga