flugfréttir
Myndband: Maðurinn sem býr í flugvél
Bruce Campbell út á "svölunum" á flugvélinni sinni sem hann býr í
Þótt flest fólk kjósi að búa í húsum þá á það ekki við Bruce Campbell, íbúa í Oregon í Bandaríkjunum, sem hefur komið sér þægilega fyrir í gamallri Boeing 727 vél sem hann lét draga lengst inn í skóg þar sem hann býr.
Campbell hefur látið að vísu fjarlægja öll sæti úr vélinni til að hafa meira rými og reynir að halda
vélinni mjög hreinni með því að þurrka vel af skónum áður en hann stígur um borð (eða gengur inn í heimilið sitt).
Fyrsta verkefni Campbell eftir að hafa látið koma vélinni fyrir í skóginum var að leggja rafmagn og
skólpleiðslur um borð og virka öll þrjú flugvélasalernin um borð.
Campbell elskar að búa um borð í flugvélinni sinni en uppáhalds staðurinn hans í vélinni er auðvitað
flugstjórnarklefinn sem hann kallar leikherbergið - og þegar heitt er í veðri er tilvalið
að fara út vængina sem hann notar sem svalir - og nóg er plássið á þeim svölum.
Campbell segir það ekki fyrir alla að búa í flugvél en hann gæti ekki hugsað sér annan stað til að vera á.
Hér gefur að líta myndband þegar CNN kíktu í heimsókn til hans á dögunum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.