flugfréttir
Lufthansa íhugar að hætta með allar A380 og Boeing 747-400
- Einnig til skoðunar að losa sig við flestar Airbus A340-300 þoturnar
Boeing 747-400 júmbó-þota og Airbus A380 risaþota frá Lufthansa á flugvellinum í Frankfurt
Lufthansa er sagt vera að íhuga að hætta með allar Airbus A380 risaþoturnar og Boeing 747-400 júmbó-þoturnar og taka þær alfarið úr flotanum vegna ástandsins sem ríkir í flugheiminum.
Það er fréttaveitan Bloomberg sem hefur þetta eftir heimildum og kemur fram að Lufthansa sé einnig að íhuga
að leggja flestum Airbus A340-300 breiðþotunum.
Lufthansa hefur í dag átta Airbus A380 risaþotur, átta Boeing 747-400 júmbó-þotur og sautján Airbus A340-300 breiðþotur
og myndi því fækka um allt að 30 breiðþotur í flota flugfélagsins þýska ef þessi ákvörðun verður tekin.
Fram kemur að Lufthansa myndi halda nýju Boeing 747-8 júmbó-þotunum sem eru 19 talsins auk Airbus A340-600 breiðþotunum en félagið hefur 17 slíkar í flotanum.
Lufthansa tilkynnti í apríl í vor, skömmu eftir að kórónaveirufaraldurinn kom upp, að félagið myndi losa sig varanlega við
sex Airbus A380 risaþotur, sjö Airbus A340-600 breiðþotur og fimm júmbó-þotur af gerðinni Boeing 747-400. Þá kom
fram að ellefu Airbus A320 þotur myndu einnig yfirgefa flotann.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.