flugfréttir

Eina fjögurra hreyfla þotan sem á sér framtíð hjá Lufthansa

- Risaþotan Airbus A380 fer sennilega úr flota frá Lufthansa

19. september 2020

|

Frétt skrifuð kl. 16:14

Boeing 747-8, júmbó-þota, Lufthansa

Júmbó-þotan, Boeing 747-8, er eina fjögurra hreyfla flugvélin sem á sér örugga framtíð hjá Lufthansa.

Þetta sagði Carsten Spohr, framkvæmdarstjóri Lufthansa, á fundi sem hann átti með starfsmönnum félagsins í vikunni þar sem hann tilkynnti að flugfélagið muni á næstunni ákveða örlög risaþotunnar Airbus A380.

Carsten undirstrikaði þau áhrif sem
COVID-19 heimsfaraldurinn hefur haft á rekstur Lufthansa og eru bókanir á flugmiðuðum fyrir október mánuð aðeins 10% af þeim bókunum sem höfðu átt sér stað fyrir sama mánuð á þessum tíma í fyrra.

Þær flugvélategundir sem verða hvað verst fyrir barðinu eru stórar, fjögurra hreyfla þotur á borð við Airbus A380 en félagið íhugar að halda einhverjum Airbus A340-600 breiðþotum áfram en þá er Lufthansa einnig að skoða möguleika á að hraða afhendingum á nýjum A350-900 þotum frá Airbus.

Þá sagði Carsten Spohr að ólíklegt sé að Lufthansa taki við fyrstu Boeing 777X þotunum fyrr en í fyrsta lagi um vorið 2022 en félagið á von á 40 þotum af gerðinni Boeing 777-8 og Boeing 777-9.

Allt stefnir í að Lufthansa verði eina flugfélagið í Evrópu til að bjóða upp á farþegaflug með júmbó-þotunni en KLM, Virgin Atlantic og British Airways lögðu sínum Boeing 747 þotum í sumar í kjölfar kórónaveirufaraldursins.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga