flugfréttir

Leggja öllum Boeing 777 þotunum í eitt ár

22. september 2020

|

Frétt skrifuð kl. 13:24

Boeing 777 breiðþota Air New Zealand

Air New Zealand ætlar að leggja öllum Boeing 777 breiðþotunum í að minnsta kosti í eitt ár eða fram í september árið 2021.

Air New Zealand hefur fimmtán Boeing 777 þotur í flotanum en sjö af þeim eru af gerðinni Boeing 777-300ER og átta af gerðinni Boeing 777-200.

Flugfélagið nýsjálenska lagði sjö Boeing 777-300 þotum í vor og stendur núna til að ferja fjórar af þeim til Victorville í Kaliforníu á meðan hinar þrjár verða settar í geymslu í Auckland á Nýja-Sjálandi þar sem hægt verður að koma þeim í umferð fljótt ef á þarf að halda.

Öllum Boeing 777-200 þotum félagsins verður komið fyrir á næstunni í langtímageymslu bæði í Roswell í Nýju-Mexíkó og í Victorville síðar í þessum mánuði.

Flugfélagið ákvað að velja Roswell og Victorville þar sem aðstaða er fyrir hendi og auk þess verður hægt að koma vélunum aftur í loftið og gera þær tilbúnar á sex til átta vikum ef þess er þörf.

Carrie Hurihanganui, rekstarstjóri Air New Zealand, segir að flugfélagið sér fram á mun hægari batahorfur í fluginu en gert var ráð fyrir og er ekki séð fram á að flugið eigi eftir að taka við sér eins snöggt og talið var í fyrstu.

Air New Zealand hefur notað Boeing 777 þoturnar í 15 ár og eru þær stærstu breiðþoturnar sem félagið notar í langflugi en félagið hefur fengið fjórtán nýjar Boeing 787-9 þotur á undanförnum árum sem verða notaðar þess í stað.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga