flugfréttir
Innanlandsflug í Víetnam búið að ná bata og gott betur
Flugvélar Vietnam Airlines á flugvellinum í Cam Ranh í Víetnam
Þrátt fyrir slæmt ástand í flugiðnaðinum víðast hvar í heiminum þá hefur innanlandsflugið í Víetnam náð sér að fullu og gott betur samkvæmt flugfélaginu Vietnam Airlines.
Vietnam Airlines segir að félagið hafi flogið með 40.000 farþega í innanlandsflugi á dag það sem af er ársins sem er 12 prósenta aukning sé það borið við sama tímabil í fyrra.
Flugfélagið, sem er þjóðarflugfélag Víetnam, flýgur í dag um 200 ferðir á dag til 40 áfangastaða í landinu og er eftirspurnin eftir flugsætum mikil.
Vietnam Airlines hefur meðal annars þurft að auka tíðni í áætlunarflugi frá Hanoi til áfangastaða á borð við Vinh, Nha Trang, Ho Chi Minh City, Da Nang auk fleiri áfangastaða.
Næstu skref hjá Vietnam Airlines er að hefja aftur millilandaflug til Japans, Kína, Suður-Kóreu, Taívan, Kambódíu og til Laos.
Þá hefur innanlandsflug í Kína einnig náð sér á strik eftir kórónaveirufaraldurinn þar í landi og eru umsvif kínversku flugfélaganna í innanlandsflugi aðeins 13 prósentum minni en þau voru fyrir COVID-19.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.