flugfréttir
SAS ætlar ekki að fljúga til Færeyja í vetur
Airbus A320neo þota SAS á flugvellinum í Vágar í Færeyjum
Scandinavian Airlines (SAS) ætlar ekki að fljúga til Færeyja í vetur og mun félagið fljúga síðasta flugið á þessu ári til Vágar þann 29. september.
SAS hefur flogið til Vágar frá Kaupmannahöfn frá því í mars árið 2017
og stóð til að fljúga áfram í vetur en félagið stefnir á að hefja aftur flug til
Færeyja þann 28. mars á næsta ári.
Ástæðan fyrir því að SAS ætlar ekki að fljúga til Færeyja í vetur er annarsvegar sú
að eftirspurn eftir flugi til eyjanna er mun minni yfir vetrartímann og hinsvegar sú að til stendur að taka upp sérstakt gjald vegna skimunar meðal farþega fyrir COVID-19 frá og með 1. október sem leggst á flugfélög og skipafélög.
Frá því 27. júní í sumar hafa allir farþegar sem koma til Færeyja með flugi eða með ferju þurft að gangast undir skimum sem ríkisstjórnin hefur greitt fyrir en nú stendur til að færa kostnaðinn yfir á þau fyrirtæki sem annast samgöngur til eyjanna.
Atlantic Airways mun því verða aftur eina flugfélagið til að sinna flugi til og frá eyjunum á milli Vágar og Kaupmannahafnar í vetur en samkeppnin við SAS hefur verið hörð sl. þrjú árin.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.