flugfréttir

Ryanair að undirbúa pöntun í allt að 200 MAX-þotur

2. október 2020

|

Frétt skrifuð kl. 18:32

Ryanair á nú þegar von á 135 Boeing 737 MAX þotum en félagið ætlar að leggja inn pöntun í 150 til 200 til viðbótar

Sagt er að Ryanair sé að undirbúa sig fyrir að skrifa undir samkomulag um risapöntun hjá Boeing í allt að 200 farþegaþotur af gerðinni Boeing 737 MAX þotur.

Lágfargjaldafélagið írska hefur nú þegar staðfest pöntun í 135 Boeing 737 MAX þotur sem eru af gerðinni Boeing 737 MAX 200 og kemur fram að félagið sé að undirbúa sig til þess að panta allt að 150 til 200 þotur til viðbótar.

Ef pöntunin verður að veruleika er um að ræða langstærstu flugvélapöntun sem gerð hefur verið á árinu 2020 sem seint mun teljast til árs góðæris meðal flugfélaganna.

Samkvæmt heimildum þá ætlar Ryanair að ganga frá og staðfesta pöntunina fyrir lok ársins á sama tíma og fyrstu Boeing 737 MAX þoturnar gætu farið að hefja sig til flugs vestanhafs.

Ryanair kom mjög vel undan árinu 2019 með lausafé upp á 333 milljarða króna og hélt Ryanair áfram að hagnast á þessu ári ólíkt mörgum öðrum flugfélögum en lausafé félagsins, þann 30. júní sl. eftir fyrri árshelming, nam 444 milljörðum króna.

„Boeing hefur gefið í skyn að MAX-þoturnar gætu mögulega farið að fljúga síðar í haust í Bandaríkjunum og þar af leiðandi gerum við okkur vonir um að fá fyrstu Boeing 737 MAX 200 þoturnar afhentar rétt fyrir lok ársins og mögulega fengið 40 þotur afhentar fyrir sumarið 2021“, segir í yfirlýsingu frá Ryanair.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga