flugfréttir
Flugleiðin á milli London og Dubai sú fjölfarnasta í dag
- Hirðir toppsætið af flugleiðinni á milli London Heathrow og New York JFK
Airbus A380 risaþota Emirates á Heathrow-flugvellinum í London
Flugleiðin á milli Heathrow-flugvallarins í London og Dubai er í dag orðin fjölfarnasta flugleið veraldar en þessi flugleið var í 5. sæti árið 2019 yfir þær fjölförnustu.
Hingað til hefur flugleiðin á milli London Heathrow og John F. Kennedy flugvallarins í New York verið
fjölfarnasta flugleið heims en vegna ferðatakmarkanna í Bandaríkjunum vegna COVID-19 heimsfaraldursins
hefur farþegaflug verið mjög takmarkað yfir Atlantshafið á milli Evrópu og Norður-Ameríku.
Í dag eru farnar 38 brottfarir á milli Dubai og London (DXB-LHR) en þær flugferðir
eru á vegum Emirates, sem notar risaþotuna Airbus A380 til flugsins, og British Airways,
sem flýgur til Dubai með Airbus A350 þotum.
Þrátt fyrir 38 vikulegar brottfarir þá er um að ræða næstum því helmingi færri flugferðir
þar sem brottfarir voru 61 á viku á sama tíma í fyrra.
Í 2. sæti yfir fjölförnustu flugferðir heims þar sem mesta framboðið er á sætum eru flug á milli Antalya í Tyrklandi og Sheremetyevo-flugvallarins í Moskvu, í 3. sæti kemur flug á milli Los Angeles og Taipei og í fjórða sæti er flug á milli Los Angeles og Seoul.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.