flugfréttir

Emirates sektað fyrir að virða ekki NOTAM upplýsingar

6. október 2020

|

Frétt skrifuð kl. 19:51

Airbus A380 risaþota Emirates á flugvellinum í Dubai

Bandarísk stjórnvöld hafa sektað Emirates um 55 milljónir króna fyrir að hafa ekki virt NOTAM flugupplýsingar sem gefnar voru út í júní í fyrra þar sem tekið var fram bann við öllu farþegaflugi yfir Íran.

Bannið var sett á af bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA) og náði til bandarískra flugfélaga en er varðar Emirates þá flaug félagið með farþega sem voru að ferðast á sameiginlegu flugnúmeri sem deildu miðasölu („codeshared flights“) með bandarískum flugfélögum og náði bannið til slíkra flugferða.

Í NOTAM upplýsingum sem gefnar voru út í júní árið 2019 kom fram að ekki væri heimilt að fljúga í gegnum Teheran flugupplýsingasvæðið (Teheran FIR) sem nær meðal annars yfir Persaflóa og Oman-flóann vegna mikillar pólitískrar spennu og hernaðaraðgerða.

Við nánari rannsókn kom í ljós að Emirates hafði flogið í gegnum umrætt svæði með farþega sem bókuðu flugið í gegnum bókunarsíðu á vegum jetBlue og voru farþegar um borð sem ferðuðust á B6-númeri sem er flugnúmer jetBlue.

„Með því að fljúga farþegaflug með farþega um borð sem flugu með B6 númeri í gegnum lofthelgi sem bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) tilgreina sem bannsvæði í NOTAM þá var Emirates að brjóta reglugerðir og þá sáttmála sem koma fram í slíkum reglum“, segir í yfirlýsingu frá samgönguráðuneyti Bandaríkjanna.

Emirates segir að félagið hafi hætt öllu flugi í gegnum Teheran FIR svæðið degi eftir að NOTAM upplýsingarnar voru gefnar út fyrir utan tvær daglegar flugferðir á milli Dubai og Teheran og nokkrum dögum síðar var hætt að taka við farþegum sem bókuðu flugið í gegnum jetBlue.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga