flugfréttir
Asiana býður upp á útsýnisflug með risaþotu
Airbus A380 risaþota Asiana Airlines
Enn bætast við flugfélög sem bjóða upp því fólki sem saknar þess að fljúga upp á útsýnisflug og en suður-kóreska flugfélagið Asiana Airlines flaug eitt slíkt sl. laugardag.
Asiana Airlines notaði risaþotuna Airbus A380 til flugsins og var farið í loftið frá Incheon-flugvellinum í Seoul og var flogið yfir nokkrar borgir í Suður-Kóreu áður en lent var aftur í Seoul tveimur tímum síðar.
310 sæti voru í boði af þeim 495 sætum sem eru um borð í risaþotum félagsins til að viðhalda samfélagslegri fjarlægð og voru 250 manns sem bókuðu útsýnisflug með vélinni.
Seldur var matur um borð auk tollfrjáls varning auk þess sem farþegar gátu horft á afþreyingarefni um borð. Asiana Airlines stefnir á tvö útsýnisflug til viðbótar, annað þann
31. október og hitt þann 1. nóvember.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.