flugfréttir

Hætta við ríkisaðstoð til KLM

- Framtíð elsta flugfélags heims gæti verið í hættu

1. nóvember 2020

|

Frétt skrifuð kl. 16:58

Flugvélar KLM Royal Dutch Airlines á Schiphol-flugvellinum í Amsterdam

Ríkisstjórn Hollands hefur hætt við áform sínu um að veita hollenska flugfélaginu KLM Royal Dutch Airlines ríkisaðstoð.

Til stóð að verja fleiri milljörðum evra í fjárhagsaðstoð til flugfélagsins en eftir flugmenn og verkalýðsfélög neituðu að skrifa undir samkomulag, sem hljóðaði upp á launaskerðingu til fimm ára, ákváðu hollensk stjórnvöld að hætta við fyrirhugaðan styrk til félagsins.

Þessi ákvörðun mun valda óvissu fyrir framtíð hollenska hluta Air France-KLM en stjórn KLM hefur lýst því yfir að félagið mun ekki geta haldið sér mikið lengur á floti án aðstoðar frá hollenska ríkinu.

„Fyrirhuguð fjárhagsaðstoð mun ekki ganga í gegn. Þetta eru vonbrigði en svona er nú í pottinn búið“, segir Wopke Hoekstra, fjármálaráðherra Hollands.

Langar viðræður höfðu átt sér stað á milli flugfélagsins og verkalýðsfélaga en Hoekstra segir að forsendur þess að ná samkomulagi voru þær að ná sáttum um nokkrar niðurskurðaraðgerðir sem þurfti að uppfylla en ekki náðist samkomulag um þau efni.

Fjármálaráðherrann gaf KLM, verkalýðsfélögum, flugmönnum og öðrum starfsmönnum frest til kl. 11:00 í gær til þess að skrifa undir samninga sem hefði veitt KLM aðgengi að ríkisaðstoð upp á 560 milljarða króna.

Flugfélagið KLM, sem sem er elsta flugfélag heims, gengur nú í gegnum eina mestu erfiðleika sem félagið hefur gengið í gegnum í 101 árs sögu félagsins og til þess að tryggja framtíð félagsins var fjárhagsaðstoðin frá hollenska ríkinu nauðsynleg.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga