flugfréttir

Bóluefni gæti boðað eðlilegt sumar í fluginu innan Evrópu

- Framkvæmdarstjóri Ryanair er „þokkalega bjartsýnn“ á sumarið 2021

10. nóvember 2020

|

Frétt skrifuð kl. 17:27

Farþegaþotur Ryanair

Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair, segir að farþegaflug innan Evrópu næsta sumar gæti nálgast þau umsvif sem voru í fluginu árið 2019 eftir fréttir gærdagsins um að miklar vonir séu bundnar við nýtt bóluefni við kórónaveirunni frá fyrirtækinu Pfizer sem gæti komið á markað fyrir lok ársins.

O´Leary kom fram á ferðaráðstefnunni World Travel Market í dag, sem fer fram á Netinu, þar sem hann sagðist „þokkalega bjartsýnn“ um að sumarið 2021 gæti orðið nokkurnveginn eðlilegt og veltur eftirspurn eftir flugi allt eftir því hversu vel gengur að dreifa bóluefninu til fólks.

„Við getum verið hæfilega bjartsýn um að næsta sumar verði veruleikinn í fluginu farinn að nálgast þá umferð sem við sáum í fyrra og fjöldi farþega gæti nálgast að vera frá 75 til 80% af þeim farþegum sem flugu árið 2019“, sagði O´Leary.

„Ef það verður raunin þá er þetta spurning um hversu hratt flugfélögin ná að bregðast við með því að auka framboð sitt og komið flugvélunum aftur í loftið“, bætir O´Leary. Tekur hann fram að hann sé ekki eins bjartsýnn er kemur að langflugi til fjarlægra áfangastaða en það er þó markaður sem snertir ekki Ryanair.

„Ég held að það eigi eftir að vera stríður straumur farþega sem eiga eftir að flykkjast til sólaráfangastaða á strendurnar á Algarve, Kanaríeyjum, grísku eyjunum og á Ítalíu. Við eigum eftir að sjá sprengingu meðal farþega á næsta ári til þessara áfangastaða“, segir O´Leary.

Er varðar vetrarvertíðina þá segir framkvæmdarstjórinn að það sé útséð með veturinn og hann sé farinn í hundana og ekki megi búast við einhverjum bókunum á næstunni til styttri tíma litið.

O´Leary segir að nóvember sé hvort sem er alltaf slæmur fyrir flugfélög í Evrópu en mögulega gæti komið smá kippur um jólin. Þá er ekki að búast við miklum breytingum strax eftir áramót. - „Það mun sennilega ekki neitt fara að gerast fyrr en við nálgumst páskana“.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga