flugfréttir

Pöntunum í 737 MAX fækkaði um 12 þotur í október

- Afbókanir í 1.043 Boeing 737 MAX þotur það sem af er árinu

10. nóvember 2020

|

Frétt skrifuð kl. 21:57

Boeing 737 MAX þotur fyrir framan verksmiðjur Boeing í Renton

Boeing missti pantanir í tólf Boeing 737 MAX þotur í október frá viðskiptavinum sem hættu við pantanir sínar en á sama tíma þá bárust engar nýjar pantanir í þotuna og heldur engar pantanir í aðrar flugvélategundir.

Meðal þeirra viðskiptavina sem hættu við Boeing 737 MAX í október er kínverska flugvélaleigufyrirtækið CDB Aviation. Þá hætti tékkneska flugfélagið Smartwings við eina MAX þotu, Oman Air hætti við þrjár þotur og þá er óþekktur viðskiptavinur sem hætti við fjórar 737 MAX þotur.

Til viðbótar þá fjarlægði flugvélaframleiðandinn 25 Boeing 737 MAX þotur af pöntunarlista sínum í október þar sem fyrirtækið telur ekki að neitt verði af kaupunum þrátt fyrir að samningar um þær þotur standi enn.

Það sem af er þessu ári hafa viðskiptavinir hætt við 1.043 eintök af Boeing 737 MAX en þegar mest var þá hafði Boeing fengið pantanir í 5.005 Boeing 737 MAX þotur en í dag stendur heildarfjöldi pantanna í 3.869 þotum.

Boeing segir að þessar afbókanir eigi eftir að minnka þann þrýsting sem var á afhendingum sem þýðir að viðskiptavinir geti búist við að fá þotur afhentar fyrr en upphaflega var gert ráð fyrir.

Boeing afhenti í október þrettán þotur. Eina af gerðinni P-8 Poseidon, eina Boeing 747-8F fraktþotu til United Parcel Service (UPS), tvær Boeing 767F fraktþotur til UPS, eina KC-46 eldsneytisflugvél, þrjár Boeing 777F fraktþotur til China Cargo, eina Boeing 777-300ER til Novus Aviation, eina Boeing 787-8 til American Airlines, eina Boeing 787-9 til AeroCap og tvær Boeing 787-10 þotur til Saudi Arabian Airlines og Etihad Airways.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga