flugfréttir

Segja breska ríkinu að kenna hversu fáir fari um Heathrow

- Charles de Gaulle í París er í dag stærsti flugvöllur Evrópu

11. nóvember 2020

|

Frétt skrifuð kl. 18:45

Farþegum um Heathrow-flugvöll hefur fækkað um 85% sl. þrjá mánuði

Stjórn Heathrow-flugvallarins í London segir að það sé breskum stjórnvöldum að kenna hversu mikið hefur dregið úr fjölda farþega sem fljúga til London.

Heathrow-flugvöllurinn hefur í marga áratugi verið stærsti flugvöllur Evrópu og einn sá annasamasti er kemur að fjölda flugtaka og lendinga en í haust missti flugvöllurinn þann titil.

Stjórn flugvallarins skellir skuldinni á bresku ríkisstjórnina og segir að aðgerðarleysi stjórnvalda sé búið að valda því að farþegar um Heathrow hafa aldrei verið færri og nú hefur Charles de Gaulle flugvöllurinn í París hirt titilinn „stærsti flugvöllur Evrópu“.

Heathrow-flugvöllur gagnrýnir stjórnvöld fyrir seinagang og segir að það taki of langan tíma að innleiða og gefa leyfi fyrir skimunarstöðvum svo hægt sé að skima fyrir kórónaveirunni meðal farþega fyrir brottför til að leysa af hólmi 14 daga sóttkví sem annars bíður farþega við komuna til Bretlands.

Þá sér Heathrow-flugvöllur fram á að ekki eins margir farþegar eiga eftir að fara um flugvöllinn á næsta ári eins og vonast var til og er gert ráð fyrir að 37 milljónir farþega eigi eftir að fara um Heathrow árið 2021 en hingað til hafa um 80 milljónir farþega farið um flugvöllinn árlega.

„Ég vona að ríkisstjórnin geri sér grein fyrir því að ef við sitjum aðgerðarlaus þá mun Bretlands missa allar þær mikilvægu tengingar við heiminn sem flugvöllurinn hefur verið þekktur fyrir“, segir John Holland-Kaye, framkvæmdarstjóri Heathrow-flugvallarins.

Holland-Kaye segir að með sama áframhaldi þá mun Schiphol-flugvöllurinn í Amsterdam og flugvöllurinn í Frankfurt í Þýskalandi ná Heathrow fljótlega.

Farþegum um Heathrow hefur fækkað um 85% á sl. þremur mánuðum og hefur flugvöllurinn alls tapað um 273 milljörðum króna á heimsfaraldrinum á fyrstu níu mánuðum ársins.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga