flugfréttir
Emirates staðráðið í að nota A380 risaþoturnar áfram
Airbus A380 risaþotur í flota Emirates
Tim Clark, forstjóri Emirates, segist fullviss um að flugfélagið muni halda áfram að nota risaþotuna Airbus A380 eftir að heimsfaraldurinn er á enda og telur hann að eftirspurn eftir flugi eigi eftir að réttlæta notkun risaþotunnar áfram.
Clark segir í nýlegu viðtali að risaþotan sé ennþá gríðarlega vinsæl meðal farþega og telur hann að Emirates
eigi eftir að vegna vel með A380 þar sem mörg önnur samkeppnisflugfélög ætla að hætta að nota risaþoturnar sínar
eða hafa flýtt fyrir því að taka þær úr umferð.
Emirates kyrrsetti allar sínar 115 risaþotur í mars en hefur í dag hafið aftur áætlunarflug með Airbus A380 á nokkrum
völdum flugleiðum að nýju.
Flugfélagið er staðráðið í að hafa risaþoturnar áfram og mun Emirates taka á móti tveimur nýjum A380 risaþotum
fyrir lok ársins.
„A380 var sennilega það besta sem gat komið fyrir Emirates. Þotan er í mjög miklum metum hjá okkur og
það er eftirsjá að vita til þess að framleiðsla hennar hefur liðið undir lok“, segir Clark.
Emirates er þó ekki eina flugfélagið sem hefur engar áætlanir um að hætta að nota risaþotuna því British Airways
segir að ekki séu nein áform um að leggja þeim endanlega og segir flugfélagið breska að Airbus A380 sé enn hluti
af flugflotanum þótt að félagið sé ekki að fljúga neinum risaþotum í dag.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.