flugfréttir
Mikil röskun á flugi í Denver vegna smits í flugturni
- Aflýsta þurfti 45 flugferðum og seinkun varð á 200 flugferðum
Frá flugvellinum í Denver í Bandaríkjunum
Mikil röskun varð á áætlunarflugi um flugvöllinn í Denver í Bandaríkjunum sl. þriðjudag eftir að í ljós kom að flugumferðarstjóri á vakt var smitaður af kórónaveirunni.
Aflýsa þurfti um 45 flugferðum auk þess sem um 200 flugferðum seinkaði um nokkra klukkutíma þar sem sótthreinsa þurfi alla aðstöðuna í flugturninum og komst flugumferðarþjónustan ekki aftur í gang
fyrr en um kvöldið.
Öll flugumferð um Denver-flugvöll lá niðri í um hálftíma frá klukkan 15:00 til kl. 15:30 og tafðist flugumferð til klukkan 18:00 um kvöldið.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem starfsmaður á flugvellinum í Denver greinist með COVID-19 en
starfsmenn flugvallarins hafa greinst jákvæðir fyrir smiti þann 23. október, 22. nóvember, 27. og 30. nóvember en þau smit ollu hinsvegar engri röskun á flugi.
Frá því að heimsfaraldurinn kom upp hafa greinst kórónaveirusmit á 250 flugstjórnarmiðstöðum og flugturnum
í Bandaríkjunum sem starfræktir eru á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA).
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.