flugfréttir

Ryanair pantar 75 þotur af gerðinni Boeing 737 MAX

- Eiga von á 210 Boeing 737 MAX 200 þotum á næstu árum

3. desember 2020

|

Frétt skrifuð kl. 15:48

Boeing 737 MAX þota sem smíðuð hefur verið fyrir Ryanair

Ryanair undirritaði í dag samning við Boeing um pöntun á 75 farþegaþotum til viðbótar af gerðinni Boeing 737 MAX.

Um staðfesta pöntun er að ræða og mun heildarfjöldi þeirra Boeing 737 MAX flugvéla sem pantaðar hafa verið af Ryanair því fara upp í 210 þotur.

Pöntunin samastendur af Boeing 737 MAX 200 þotum sem er sérstök útgáfa af 737 MAX 8 sem er ætluð fyrir lágfargjaldaflugfélög og kemur sú þota með sæti fyrir 197 farþega.

Boeing kynnti 737 MAX 200 til leiks árið 2014 og var á sama tíma kynnt um pöntun Ryanair sem þá lagði inn pöntun í 100 slíkar þotur með möguleika á 100 þotum til viðbótar.

Ryanair ákvað svo árið 2017 að panta tíu Boeing 737 MAX 200 þotur til viðbótar árið 2017 og 25 bættust við á pöntunarlistann árið 2018 og átti félagið því von á 135 þotum þar til í dag og á lágfargjaldarfélagið írska því von á 210 þotum á næstu árum.

Fyrsta pöntunin í 737 MAX frá því kyrrsetningunni var aflétt

Þetta er fyrsta pöntunin sem Boeing fær í Boeing 737 MAX frá því að kyrrsetningu vélanna var aflétt af bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA) þann 18. nóvember síðastliðinn.

Ekki kemur fram hvert kaupverðið er en talið er að Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair, hafi fengið mjög góðan afslátt en samkvæmt listaverði er pöntunin metin á 1.134 milljarða króna.

„Við erum mjög þakklát fyrir það að Ryanair hafi enn og aftur sýnt traust sitt á Boeing 737 þotunum og að félagið haldi áfram að byggja upp framtíðarflugflota sinn með þessari pöntun“, segir Dave Calhoun, framkvæmdarstjóri Boeing.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga