flugfréttir

Rolls-Royce ætlar að einblína á hreyfla fyrir minni þotur

- Sjá ekki fram á mikla eftirspurn eftir hreyflum fyrir breiðþotur á næstunni

3. desember 2020

|

Frétt skrifuð kl. 20:45

Rolls-Royce hefur verið leiðandi í þróun og framleiðslu á hreyflum fyrir stórar breiðþotur

Breski hreyflaframleiðandinn Rolls-Royce hefur tilkynnt að fyrirtækið ætli að einblína á næstunni á framleiðslu á hreyflum fyrir meðalstórar flugvélar en fyrirtækið hefur sl. ár sérhæft sig í þróun og framleiðslu á hreyflum fyrir stórar breiðþotur.

Rolls-Royce segir að þar sem töluverð niðursveifla virðist vera í eftirspurn eftir breiðþotum og á þeim markaði sem snýr að langflugi þá leitar fyrirtækið leiða til þess að komast í gegnum krísuna vegna heimsfaraldursins.

Fyrirtækið hefur þegar haft viðræður við Airbus um þróun á nýrri kynslóð hreyfla fyrir minni farþegaþotur sem gætu mögulega komið á markaðinn fyrir árið 2035 á meðan óvíst er um hvenær aftur verður eftirspurn eftir stórum hreyflum fyrir breiðþotur.

Rolls-Royce hefur þegar unnið að UltraFan hreyflinum og áttu tilraunir á jörðu niðri með þann hreyfil að hefjast á næsta ári en því hefur verið frestað vegna faraldursins. Sá hreyfill átti meðal annars að knýja áfram nýju Boeing 797 framtíðarþotuna en óvíst er hvenær og hvort að Boeing eigi eftir að hefja framleiðslu á þeirri þotu.

Simon Burr, yfirmaður yfir tæknideild Rolls-Royce, segir að með UltraFan hreyflinum og núverandi framleiðslu á Trent-hreyflinum, gæti fyrirtækið boðið upp á mjög viðtækt úrval af hreyflum fyrir allar stærðir af þotum.

Hinsvegar er framhaldið á heimsfaraldrinum það óljóst að Rolls-Royce neyðist til að bíða og sjá hver þróunin verður og hversu hratt flugiðnaðurinn á eftir að koma til baka.

Rolls-Royce hefur unnið að því að aðlaga rekstur og framleiðsluna að breyttum aðstæðum og sagði fyrirtækið meðal annars upp 1.400 manns í nóvember og eiga þær aðgerðir að tryggja framtíð Rolls-Royce.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga