flugfréttir

Eins árs hlé á afhendingum á A380 til Emirates

- Fá þrjár A380 afhentar í desember og síðustu þrjár árið 2022

7. desember 2020

|

Frétt skrifuð kl. 10:01

Airbus mun fá þrjár A380 risaþotur afhentar fyrir áramót áður en eins árs hlé verður gert á afhendingum

Emirates hefur frestað afhendingum á seinustu Airbus A380 risaþotunum fram til ársins 2022 en félagið á eftir að fá fimm risaþotur afhentar í dag.

Samkvæmt núverandi afhendingaráætlun Airbus stendur til að afhenda þrjár A380 risaþotur til Emirates fyrir lok ársins og fékk félagið fyrstu þotuna af þessum tveimur afhentar á dögunum og verða tvær til viðbótar afhentar síðar í desember.

Síðustu þrjár A380 risaþoturnar, sem til stóð að afhenda árið 2021, verða afhentar þess í stað vorið 2022, tvær í apríl og sú seinasta í maí.

Nýjasta A380 risaþotan er sú hundraðasta og sextánda sem afhent er til Emirates og var henni flogið frá Toulouse í Frakklandi til Dubai með orkugjafa sem var eldsneytisblanda með lífrænu eldsneyti sem samanstóð meðal annars af steikingarolíu sem framleidd er í Finnlandi.

„Sjálfbær orkugjafi er eitthvað sem við ætlum að einblína á í framtíðinni. Við erum að fylgjast með þessari þróun mjög gaumgæfilega og okkur hlakkar til að geta farið að nota slíkan orkugjafa enn meira“, segir Tim Clark, forstjóri Emirates.

Af þeim 114 risaþotum sem eru í flota Emirates þá eru 102 í geymslu og aðeins fjórar risaþotur sem félagið er að fljúga reglulega þessa dagana en Emirates ætlar sér að vera komið með allar A380 risaþoturnar á loft eftir um það bil ár eða í ársbyrjun ársins 2022.

Emirates ákvað í febrúar árið 2019 að skera af risaþotupöntun sinni hjá Airbus og hætti félagið við 39 risaþotur sem varð til þess að Airbus sá fyrir endanum á framleiðslunni á Airbus A380 og tilkynnti fljótlega eftir það að smíði risaþotunnar myndi taka enda árið 2021.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga