flugfréttir
Fyrsta farþegaflugið með 737 MAX eftir kyrrsetninguna
- Fyrsta flugið var flug frá Sao Paulo til Porto Alegre
Brasilíska flugfélagið GOL Linhas Aéreas er fyrsta flugfélagið til að hefja áætlunarflug að nýju með Boeing 737 MAX eftir flugbannið
Boeing 737 MAX þotan flaug í gær sitt fyrsta áætlunarflug eftir 20 mánaða hlé en það var brasilíska flugfélagið GOL Linhas Aéreas sem var fyrsta allra flugfélaga í heiminum til þess að fljúga farþegaflug með 737 MAX eftir kyrrsetningu vélanna.
Fyrsta áætlunarflugið var innanlandsflug í Brasilíu sem var
frá Sao Paulo til Porto Alegre og var flugið flogið með þotunni PR-XMB
sem var smíðuð í ágúst árið 2018.
Seinasta flugið sem þotan PR-XMB flaug áður en flugbannið skall á var
áætlunarflug frá Santiago til Sao Paulo þann 11. mars árið 2019 en eftir
það var þotan ferjuð til Belo Horizonte daginn aftur.
PR-XMB á flugvellinum í Porto Alegra í gær eftir fyrsta flugið frá Sao Paulo
Eftir fyrsta flugið var þotunni flogið aftur til baka til Sao Paulo og þaðan
flaug hún fjóra fleiri leggi í gær sem voru tvær flugferðir
á milli Sao Paulo og Florianapolis og aftur til Florianapolis í morgun.
Brasilía og Bandaríkin eru fyrstu löndin sem hafa gefið út flughæfnisvottun að nýju fyrir Boeing 737 MAX en American Airlines verður fyrsta flugfélagið í Bandaríkjunum til þess að hefja áætlunarflug vestanhafs síðar í mánuðinum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.