flugfréttir

Sjálfsmyndataka talin orsök flugslyss

10. desember 2020

|

Frétt skrifuð kl. 14:05

Fisvélin í sjónum rétt við ströndina í bænum Mayaguez á Púertó Ríkó

Samgönguöryggisnefnd Bandaríkjanna (NTSB) hefur birt lokaskýrslu varðandi flugslys sem átti sér stað á Púertó Ríkó í fyrra er fisflugvél brotlenti á sjó en slysið er rakið til þess að flugmaður vélarinnar var að reyna að taka ljósmynd af sjálfum sér.

Slysið átti sér stað þann 22. desember í fyrra og var fisvélin á flugi skammt undan ströndinni við bæinn Mayaguez en um borð var flugnemi í sólóflugi.

Fisið var af gerðinni Quicksilver MX II Sprint og sagði flugneminn að hann hafi verið að reyna að taka mynd af sér („selfie“) þegar hann óvart rakst í eldsneytisloka vélarinnar (Fuel shut off valve) sem varð til þess að það lokaðist fyrir eldsneytiflæði inn á mótorinn.

Fisið brotlenti í sjónum og var flugmanninum bjargað af nokkrum bátum sem komu strax á vettvang. Fisið varð fyrir töluverðum skemmdum bæði á væng og á grind en flugmanninn sakaði ekki en hann týndi þó logbókinni sinni í sjónum sem fannst ekki.

NTSB telur að slysið megi rekja til þess að flugmaðurinn hafi rekið sig í eldsneytilokann sem fór yfir á „OFF“ sem varð til þess að mótorinn varð fyrir eldsneytisþurð og stöðvaðist samstundis.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga