flugfréttir
Montenegro Airlines hættir starfsemi
- 26 ára saga ríkisflugfélags Svartfjallalands á enda
Embraer 190 þota frá Montenegro Airlines
Flugfélagið Montenegro Airlines, ríkisflugfélag Svartfjallalands, er gjaldþrota og hefur félagið hætt öllu áætlunarflugi og var síðasta áætlunarflugið farið á Jóladag sem var áætlunarflug á milli Belgrad og höfuðborgarinnar Podgorica.
„Ríkisstjórn Svartfjallalands ákvað að binda endi á starfsemi félagsins og mun það hafa
mjög neikvæð áhrif á allan flugiðnaðinn í landinu“, segir í tilkynningu frá flugfélaginu.
Montenegro Airlines var 26 ára gamalt flugfélag en það var stofnað árið 1994
og hóf félagið starfsemi sína með farþegaþotur af gerðinni Fokker 100 fyrst um sinn.
Félagið hafði fjórar þotur í flota sínum í ár sem voru af gerðinni Embraer 195
og Fokker 100 en félagið hefur einnig haft í flotanum Boeing-þotur af gerðinni
Boeing 737-300 og Boeing 737-500.
Ríkisstjórn Svartfjallalands hefur tilkynnt að nýtt flugfélag verði stofnað í stað
Montenegro Airlines á næstu sex til níu mánuðum en fram kemur að allt hafi
verið gert til þess að reyna að bjarga rekstri félagsins.
„Við skoðuðum alla möguleika sem, hringdum út um allt, áttum viðræður við stjórn
félagsins og aðrar stofnanir og aðila“, segir Mladen Bojanić, fjárfestingarráðherra landsins, sem tekur fram að þrátt
fyrir allar tilraunir þá hafi verið ómögulegt að bjarga félaginu þar sem skuldir
þess voru orðnar of miklar.
Montenegro Airlines hefði þurft opinbera fjárhagsaðstoð upp á 24 milljarða
króna en slík aðstoð hefði verið ólögleg samkvæmt reglugerðum um opinbera
aðstoð.
Ríkisstjórnin segir að farið verði strax í að undirbúa nýtt flugfélag en það verði
mjög erfitt verk þar sem nauðsynlegt verði að byrja alveg frá grunni og sækja
um öll leyfi upp á nýtt og þar á meðal flugrekstarleyfi og lendingarpláss á flugvöllum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.