flugfréttir
Virgin Orbit sendi eldflaug út í geim frá júmbó-þotu
- LauncherOne fór með tólf gervitungl út í geim í gær
Fram kemur að þetta sé í fyrsta sinn sem eldflaug er send út í geim eftir að hafa verið skotið á loft frá flugvél
Virgin Orbit, fyrirtæki í eigu milljarðamæringsins Richard Branson, tókst í gær að skjóta eldflauginni LauncherOne á loft út í geim frá júmbó-þotu af gerðinni Boeing 747-400 sem flaug með eldflaugina og sleppti henni á flugi.
Tilraunin tókst giftusamlega en eldflaugin fór með tólf lítil gervitungl sem var sleppt sem munu svífa
um á sporbaug kringum jörðina en gervitunglin nefnast CubeSat.
Það var júmbó-þotan „Cosmic Girl“ sem fór með eldflaugina á loft frá Spaceport-flugvellinum
í Mojave-eyðimörkinni í gær og var flogið út á Kyrrahaf, rétt undan ströndum Kaliforníu, þar
sem eldflauginni var sleppt.
Tilraun með að koma LauncherOne út í geim fór fram í maí í fyrra en sú tilraun mistókst
hinsvegar þá þar sem eldflaugin snéri ekki við til baka á áætlaðan lendingarstað og endaði í sjónum í
Kyrrahafinu vegna bilunar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.