flugfréttir
IAG mun kaupa Air Europa fyrir helmingi lægra verð
Búið verður að ganga frá samrunanum á síðari helming ársins 2020
International Airlines Group (IAG), móðurfélag British Airways, mun kaupa spænska flugfélagið Air Europa fyrir helmingi lægra verð en upphaflega stóð til að greiða fyrir félagið þegar tilkynnt var um fyrirhuguð kaup í nóvember í fyrra.
Til stóð að IAG myndi kaupa Air Europa fyrir einn milljarð evra en í yfirlýsingu frá IAG
kemur fram að samið hefur verið um kaupverð upp á 500 milljónir evra í ljósi ástandsins í flugiðnaðinum.
Með kaupunum mun IAG fá aukið aðgengi að markaðnum í Suður-Ameríku og Mið-Ameríku en Air Europa flýgur meðal annars langflug til áfangastaða í Paraguay, Brasilíu, Argentínu, Perú, Kólombíu, Uruguay, Panama, Bólivíu auk Kúbu.
Air Europa hefur í dag 52 þotur í flota sínum eða sextán færri þotur en í nóvember þegar
fyrst var greint frá kaupunum en allar þoturnar eru teknar á leigu. Air Europa skilaði inn hagnaði
eftir árið 2019 upp á 11 milljarða króna en umsvif félagsins í fyrra drógust saman um 70 prósent
vegna heimsfaraldursins.
Air Europa var stofnað árið 1986 og er félagið þriðja stærsta flugfélag Spánar á eftir Iberia og Vueling en vinsælustu áfangastaðir félagsins eru Mallorca og Tenerife.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.