flugfréttir

Afköst í framleiðslu á A320 verða aukin um mitt árið

- Framleiðsluhraðinn á breiðþotum verður ekki aukinn á þessu ári

22. janúar 2021

|

Frétt skrifuð kl. 16:50

Airbus stefnir á að auka afköstin í framleiðslu á Airbus A320 þotunni á seinni helming ársins

Evrópski flugvélaframleiðandinn Airbus stefnir á að auka framleiðsluhraðann við smíði á Airbus A320 þotunum á þessu ári en þó ekki á sama hraða og áætlað var fyrir heimsfaraldurinn.

Fram kemur í yfirlýsingu frá Airbus að framleiðsluafköst á samsetningu á nýjum flugvélum verða óbreytt lengur en gert var ráð fyrir og þá mun framleiðsla á breiðþotum ekki aukast á næstunni.

Airbus segir að framleiðsluhraðinn við samsetningu á Airbus A350 og A330 verði áfram sá sami og munu afköstin ekki aukast í breiðþotudeildinni á þessu ári en þessa stundina eru smíðuð fimm eintök af Airbus A350 á mánuði og tvö eintök af Airbus A330.

Ljósi punkturinn er hinsvegar sá að til stendur að auka afköstin við smíði á þotum á borð við Airbus A320 og A321 síðar á árinu. Í dag eru framleiddar 40 þotur af gerðinni A320 og A321 en áætlað er að afköstin fari upp í 43 þotur með haustinu og loks 45 þotur á mánuði á fjórða ársfjórðungi ársins.

Airbus gerir ráð fyrir að markaðurinn verði í lægð fram til ársins 2023 og jafnvel til 2025 er kemur að framleiðslu á flugvélum.

Mjög fljótlega eftir að kórónaveirufaraldurinn kom upp byrjaði Airbus að grípa í taumana og var öll framleiðsla á flugvélum stöðvuð í fjóra daga en þegar framleiðslan hófst á ný var hún minnkuð um aðeins þriðjung af því sem var fyrir heimsfaraldurinn sem hefur bitnað mest á framleiðslu á breiðþotum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga